Samkvæmt vísitölu launa voru regluleg laun að meðaltali 2,8% hærri á fyrsta ársfjórðungi 2008 en í ársfjórðungnum á undan. Á sama tímabili hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 2,6% að meðaltali og laun opinberra starfsmanna um 3,1%. Frá fyrra ári hækkuðu laun um 7,1%, 7,5% á almennum vinnumarkaði og um 6,1% hjá opinberum starfsmönnum. Þetta kemur fram í frétt Hagstofu Íslands.
Sérfræðingar hækka mest
Frá
fyrri ársfjórðungi hækkuðu laun sérfræðinga mest eða um 3,8% en laun
iðnaðarmanna hækkuðu minnst, um 2,1%. Laun sérfræðinga hækkuðu
jafnframt mest frá fyrsta ársfjórðungi 2007 eða um 10,9% en laun
iðnaðarmanna hækkuðu minnst, 5,7%.
Hækkun
launa eftir atvinnugrein mældist mest í fjármálaþjónustu,
lífeyrissjóðum og vátryggingum (J), 3,5% frá fyrri ársfjórðungi en
minnst mældist hækkun launa í iðnaði (D) og samgöngum og flutningum
(I), 2,3%. Frá fyrra ári hækkuðu regluleg laun í fjármálaþjónustu,
lífeyrissjóðum og vátryggingum (J) mest eða um 11,8% en minnst mældist
hækkunin í iðnaði (D), 5,7%.
Kjarasamningar
flestra stéttarfélaga starfsmanna ríkisins og sveitarfélaga gerðu ráð
fyrir 2%–3% hækkun launataxta frá 1. janúar 2008. Samkvæmt samkomulagi
um endurskoðun kjarasamnings Kennarasambands Íslands (fyrir hönd Félags
grunnskólakennara og Skólastjórafélags Íslands) og Launanefndar
sveitarfélaganna hækkuðu einnig öll starfsheiti félagsmanna um einn
launaflokk þann 1. mars 2008.
Kjarasamningur Samtaka atvinnulífsins og Sambands íslenskra bankamanna kvað á um 2,25% hækkun launa þann 1. janúar 2008. Kjarasamningar Samtaka atvinnulífsins og landssambanda og stærstu aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands voru hins vegar lausir um áramót.
Nýir samningar sem aðilar undirrituðu þann 17. febrúar síðastliðinn komu að hluta til framkvæmda undir lok fyrsta ársfjórðungs 2008. Samkvæmt samningunum hækka launataxtar um 18.000 krónur frá 1. febrúar 2008, auk þess sem í þeim er kveðið á um sérstaka launaþróunartryggingu sem felur í sér 5,5% lágmarkshækkun launa frá janúar 2007 til gildistöku nýrra samninga, að því er segir í frétt Hagstofu Íslands.