„Stór áfangi í náttúruvernd"

Fáni Vatnajökulsþjóðgarðar var dreginn að húni í Skaftafelli í dag. stækka

Fáni Vatnajökulsþjóðgarðar var dreginn að húni í Skaftafelli í dag. Snorri Steinn Þórðarson

Stofnun Vatnajökulsþjóðgarðar fór fram við formlega athöfn í Skaftafelli klukkan þrjú í dag.  Að sögn Þórunnar Sveinbjarnardóttur, umhverfisráðherra, er um stóran áfanga í náttúruvernd á Íslandi að ræða.   Þórunn segir stofnun þjóðgarðsins hafa mikil og margvísleg áhrif og renna styrkum stoðum undir atvinnu í ferðaþjónustu í þjóðgarðinum og á öllum nærsvæðum hans.

„Stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs styrkir byggð allt í kringum þjóðgarðinn og kemur Íslandi enn betur á kortið sem áhugaverðum stað fyrir erlenda ferðamenn, sem koma hingað fyrst og fremst til þess að skoða náttúruna," segir Þórunn í samtali við mbl.is

Þórunn segir stærð og fjölbreytileika þjóðgarðsins bjóða upp á ólíka kosti í útivist og ferðamennsku.

„Ég er þess fullviss að Vatnajökulsþjóðgarður, sem stærsti þjóðgarður í Evrópu og einstakur á heimsvísu, muni hafa mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn.  Þjóðgarðurinn er að sjálfsögðu tæki til þess að vernda náttúruna og stuðla að sjálfbærri nýtingu, til langs tíma litið mun þessi þjóðgarður skila gríðarmiklum tekjum í ríkiskassann í formi gjaldeyristekna," segir Þórunn, og bætir við að straumur ferðamanna aukist jafnt og þétt til landsins, og mikilvægt sé fyrir umhverfið og byggðirnar í landinu að straumi ferðamanna sé stýrt um allt landið.

Í tilefni stofnunar þjóðgarðsins var efnt til opnunarhátíðar fyrir almenning í Gljúfrastofu í Jökulsárgljúfrum, á Skriðuklaustri í Fljótsdal, í Skaftafellsstofu í Skaftafelli og í Kirkjuhvoli á Kirkjubæjarklaustri í dag.  Vatnajökulsþjóðgarður verður stærsti þjóðgarður Evrópu eða um 15.000 ferkílómetrar að stærð.

Vatnajökulsþjóðgarður verður í endanlegri mynd stærsti þjóðgarður Evrópu.

Vatnajökulsþjóðgarður verður í endanlegri mynd stærsti þjóðgarður Evrópu. Rax / Ragnar Axelsson

Frá formlegri athöfn í Skaftafelli í dag.

Frá formlegri athöfn í Skaftafelli í dag. Snorri Steinn Þórðarson

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »
Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.

Meintar falsanir til lögreglunnar

19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Þjófar í gæsluvarðhald

15:39 Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir voru handteknir í gærmorgun eftir að þeir höfðu brotist inn í hús í Grafarvogi en þýfi fannst í fórum þeirra. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
2003 Honda Civic EX Great Condition
2003 Honda Civic EX 72,159 km(44,838 miles) Price / Verð: 1.198.000 Arnar ...
Yndislegur HRFÍ Maltese hvolpur til sölu
7 mánaða gamall og með ættbók frá HRFÍ. Foreldrar eru Alþjóða- og íslenskir meis...
Toyota Corolla1,4 VVTi,8/2003
Til sölu Toyota Corolla 1,4 VVTi, 8/2003. Ek. 100 þús., bensín, nýskoðaður, ný ...
Nuddbekkjalök,Andlitslök,Nuddbelti,Nuddolía,Hitateppi,Nuddpúðar,Bekkjabreikkun,
Nuddbelti,Nuddolía,Hitateppi,Nuddpúðar,Bekkjabreikkun,Nuddbekkjalök,Andlitslök,N...
 
Stykkishólmur vatnshús við skipavíkurbryggju

Útboð Stykkishólmur, vatnshús við...
Sýslumaðurinn í vík - framhald uppboðs

Uppboð www.naudungarsolur.is Framhald up...
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Aðstoðarskólastjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Blönduskóli Aðstoðarskólastjóri Staða...