Allt að 50 þúsund manns í miðborginni í dag

Frá tónleikum í miðborg Reykjavíkur í kvöld
Frá tónleikum í miðborg Reykjavíkur í kvöld mbl.is/hag

Allt hefur farið vel fram í Reykjavík á þjóðhátíðardegi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hefur ekkert alvarlegt komið upp og dagurinn farið fram úr björtustu vonum miðað við þann gífurlega mannfjölda sem lagði leið sína í miðborg Reykjavíkur í dag og kvöld. Er talið að þegar mest var hafi allt að fimmtíu þúsund manns verið á hátíðarsvæðinu í Kvosinni. Formlegri hátíðardagskrá lýkur klukkan 23:00.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert