14 ára ökumaður velti bíl

mbl.is/Július

Bílvelta varð um hálf fjögurleytið í nótt á gatnamótum Suðurlandsvegar og Bláfjallavegar.  Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var ökumaður bílsins 14 ára gamall og grunaður um ölvun við akstur.  Þrjú ungmenni voru send á slysadeild en að sögn lögreglu er ekki talið að um alvarleg meiðsl hafi verið að ræða.  Að sögn lögreglu sluppu ungmennin ótrúlega vel miðað við aðstæður.

Að sögn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðið voru þrír bílar og klippibíll sendir á staðinn en ekki þurfti að nota hann.   Bíllinn er óökufær eftir veltuna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert