Fánum stolið af leiði Jóns Sigurðssonar

Íslenski fáninn
Íslenski fáninn

Fánar, sem blöktu við hún við leiði Jóns Sigurðssonar í Hólavallakirkjugarði við Suðurgötu, voru horfnir þegar starfsmenn Framkvæmda- og eignasviðs hugðust taka þá niður að kvöldi þjóðhátíðardags. Eru þeir sem geta upplýst um hvarf fánanna  beðnir um að hafa samband við lögreglu.

Sjö íslenskir fánar voru uppi með hefðbundnu sniði. Fimm fánar við leiði Jóns og tveir fánar við inngang í kirkjugarðinn frá Suðurgötu. Samtals sjö fánar sem allir voru horfnir þegar starfsmenn mættu rétt fyrir klukkan ellefu um kvöldið til að taka þá niður, samkvæmt tilkynningu.

Þjófnaður kærður til lögreglu

Í dag voru tekin af öll tvímæli um að misskilningur hefði komið upp milli samstarfsmanna, en sú eftirgrennslan leiddi ekkert í ljós. Fánunum hefur því verið stolið og var þjófnaðurinn kærður í dag til lögreglu.

„Manni svíður að einhver skuli taka upp á þessu," segir Pétur Ársælsson hjá Framkvæmda- og eignasviði, í tilkynningu. Það er ekki nýtt að fánum sé stolið, en það er virkilega dapurt að menn skuli fremja svona verknað."

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert