Jafnréttisbaráttunni langt í frá lokið

Kvenréttindadagurinn verður haldinn hátíðlegur víða um land í dag. Að sögn Kristínar Ástgeirsdóttur, framkvæmdastýru Jafnréttisstofu, mætti staða kvenna á Íslandi vera betri. Ef miðað er við Norðurlöndin erum við á eftir á ýmsum sviðum. Þar má nefna hlut kvenna í stjórnum fyrirtækja, á þingi og í sveitarstjórnum. Vandinn er þannig nátengdur pólitískum og efnahagslegum völdum. Þau verkefni sem liggi brýnast fyrir séu því að lagfæra stöðu kvenna á þessum sviðum, auk þess að leiðrétta laun umönnunarstétta og draga úr kynbundnu ofbeldi.

Staðan er þó ekki alslæm þar sem íslenskar konur standa erlendum kynsystrum sínum framar á öðrum sviðum. Til dæmis eru konur afar öflugir þátttakendur á vinnumarkaði auk þess sem kvennasamtök, sem veita stjórnvöldum og aðilum á vinnumarkaði aðhald, eru mjög virk.

Kristín hefur trú á því að jafnréttislögin muni skila árangri en það sem þau fela í sér, umfram eldri lögin, er öflugra eftirlit og strangari kvaðir hvað varðar vinnumarkaðinn og jafnréttisáætlanir ríkis og sveitarfélaga. Þá er í fyrsta skipti nú minnst á kynbundið ofbeldi í lögunum. Kristín segir það afar stórt skref og er það eitt af hinum stóru úrlausnarverkefnum Jafnréttisstofu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert