Miðborgarþjónar aðstoða borgarbúa

Lögreglan að störfum í miðborginni
Lögreglan að störfum í miðborginni mbl.is/Júlíus

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu borgarstjóra um tilraunaverkefni til þriggja vikna um starfsemi sérstakra miðborgarþjóna á vegum Reykjavíkurborgar. 

 Miðborgarþjónar verða í miðborginni um helgar frá klukkan tvö á nóttunni til átta á morgnana aðfaranætur laugardaga og sunnudaga. Þeir verða sex á vakt hverju sinni og munu aðstoða fólk sem lendir í erfiðleikum, til dæmis vegna ölvunar og hafa eftirlit með og reyna að tempra hávaða, að því er segir í tilkynningu.

Miðborgarþjónar starfsmenn öryggisgæslufyrirtækis

Miðborgarþjónar verða til staðar við biðskýli leigubifreiða, en myndast hafa langar biðraðir eftir leigubílum um helgar, vegna skorts á bílum, að því er segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Þá munu þeir aðstoða hreinsunarbíla við að komast leiðar sinnar en hreinsun mun hefjast fyrr á morgnana um helgar í sumar.

Þeir hafa talstöð og verða í nánum tengslum við lögreglu og sjúkraflutningamenn. Leitað hefur verið til fyrirtækja á sviði öryggisgæslu vegna verkefnisins og þess verður vandlega gætt að verkefnin skarist ekki við lögbundin verkefni lögreglu, samkvæmt tilkynningu.

„Borgaryfirvöld hafa að undanförnu fundað með lögreglu, veitingahúsaeigendum, fulltrúum íbúasamtaka, hverfisráðs miðborgar og verslunareigendum. Á þessum fundum hefur komið fram eindregin ósk um samstarf á milli lögreglu, borgaryfirvalda og veitingahúsaeigenda til að takast á við þann vanda sem kemur upp í miðborginni um helgar, svo sem vegna ölvunar, hávaða og umgengni," samkvæmt tilkynningu.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert