Krýsuvíkurvegur lokaður í kvöld og nótt

Krýsuvíkurvegur verður lokaður frá klukkan 20 í kvöld og fram undir morgun vegna malbikunarframkvæmda. Vegurinn verður einnig lokaður annað kvöld og að öllum líkindum aðfaranótt fimmtudags. Er vegurinn lokaður frá Bláfjallaafleggjara upp að malarnámu í Vatnskarði. Hjáleið er um Ísólfsskálaveg.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert