Margrét Blöndal stýrir verslunarmannahelginni á Akureyri

Margrét hefur verið ráðin til að stýra undirbúningi fyrir verslunarmannahelgina …
Margrét hefur verið ráðin til að stýra undirbúningi fyrir verslunarmannahelgina á Akureyri.

Akureyrarstofa hefur samið við Margréti Blöndal fjölmiðlakonu um að taka að sér að stýra undirbúningi og hátíðarhöldum á Akureyri um verslunarmannahelgina.

Í fréttatilkynningu frá Akureyrarstofu segir: „Margrét mun leiða hóp hagsmunaaðila sem standa saman að því að bjóða til fjölskylduhátíðar í bænum. Markmiðið er að bjóða upp á ljúfa og skemmtilega hátíð og tengja hana sögu og bæjarbrag á Akureyri í ríkari mæli en verið hefur.

Margrét er að góðu kunn fyrir störf sín í fjölmiðlum um árabil hefur jafnframt komið að skipulagningu ýmissa viðburða í gegnum tíðina. Margrét hefur strax störf við skipulagninguna í samvinnu við Akureyrarstofu og fjölmarga aðila í athafnalífi á Akureyri, fyrirtæki, félög og einstaklinga."

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert