Bið eftir hjartaþræðingu styttist
Hjartaaðgerð á Landspítala. mbl.is/Golli
Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Landlæknisembættinu um biðlista eftir aðgerðum á sjúkrahúsum hér á landi miðað við 1. júní. Aldrei áður hafa verið gefnar út tölur svo skömmu eftir viðmiðunardagsetninguna. Þá telst einnig markvert að nú sendir St. Jósefsspítali í Hafnarfirði tölur í fyrsta sinn. Skiptir það einkum máli fyrir tvær tegundir biðlistaaðgerða, sem þar eru gerðar í talsvert miklum mæli, annars vegar aðgerðir á augasteini, en hins vegar kvensjúkdómaaðgerðir, að því er segir á vef Landlæknisembættisins.
Styttri bið eftir brjóstaminnkun
Meðal annarra biðlista sem halda áfram að styttast má nefna listann á háls-, nef- og eyrnadeild og lista lýtalækningadeildar vegna brjóstaminnkunaraðgerða, en þar er í raun ekki um eiginlegar lýtaaðgerðir að ræða heldur aðgerðir vegna mikilla álagseinkenna sem konur hafa af mjög stórum brjóstum.
Eins og áður bíður allstór hópur fólks eftir aðgerð vegna skýs á auga. Nýlega gerði heilbrigðisráðherra samning við augnlæknastofur um þessar aðgerðir, en áhrifa þess er varla farið að gæta á listum sjúkrahúsanna enn sem komið er.
Biðlisti eftir gerviliðaaðgerðum lengist
Eini biðlistinn sem lengist svo nokkru nemur er vegna gerviliðaaðgerða á hnjám. Fjöldi þessara aðgerða eykst jafnt og þétt. Kemur þar einkum tvennt til. Annars vegar verður fólk æ þyngra og því fylgja aukin álagseinkenni í hnjám og hins vegar verða aðgerðirnar sífellt öruggari þannig að breiðari aldurshópur fer í slíkar aðgerðir.
Bloggað um fréttina
-
Lára Stefánsdóttir Blóðug hjartaþræðing eða karlmannsnári -
Guðrún María Óskarsdóttir. Framþróun í heilbrigðiskerfinu ?
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 7. mars 2009, Innlent Fækkar á biðlistunum
- Þriðjudagur, 7. ágúst 2007, Innlent Óviðunandi bið eftir hjartaþræðingu
- Sunnudagur, 2. nóvember 2008, Innlent Biðin lengist eftir augasteinsaðgerð
- Sunnudagur, 28. júní 2009, Innlent Bið eftir aðgerðum styttist
- Laugardagur, 29. september 2007, Innlent Biðin brátt úr sögunni?
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju




































