Búið að semja

Frá Leifsstöð í morgun
Frá Leifsstöð í morgun mbl.is/Árni Sæberg

Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur verið gengið frá samningi við Félag flugumferðarstjóra. Verkfall flugumferðarstjóra hófst klukkan 7 í  morgun en verkföll voru boðuð næstu daga sem hefðu haft gríðarleg áhrif á allt flug til og frá Íslandi sem og innanlands.

Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu ríkissáttasemjara er ekki búið að skrifa undir samninginn en það verður væntanlega gert innan tíðar.

Samningafundur í deilu Félags íslenskra flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins fyrir hönd Flugstoða hófst klukkan 10 í gærmorgun og er að ljúka með samningi nú á tíunda tímanum eða sólarhring eftir að fundur hófst.

Flugumferðarstjórar að störfum.
Flugumferðarstjórar að störfum. mbl.is/Brynjar Gauti
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert