Ölvaður á 156 km hraða

mbl.is/Július

Karl um þrítugt var tekinn fyrir hraðakstur á Hafnarfjarðarvegi í gær en bíll hans mældist á 156 km hraða. Lögreglumenn við eftirlitsstörf í Kópavogi urðu hans varir og veittu þeir ökufantinum eftirför í Hafnarfjörð. Þar var hann handtekinn og færður á lögreglustöð en maðurinn reyndist jafnframt vera ölvaður. Hann var síðan sviptur ökuréttindum til bráðabirgða og gert að afhenda ökuskírteini sitt, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Þess má geta að ökufanturinn furðaði sig á afskiptum lögreglunnar en hann taldi sig hafa ekið á eðlilegum umferðarhraða, að því er segir í tilkynningu frá lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert