Þjófar höfðu á brott með sér tölvur og brauðrist

Brotist var inn í tvo sumarbústaði í Galtarholti í Borgarbyggð í nótt. Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi höfðu þjófarnir á brott með sér tölvur, tölvuskjái og brauðrist.

Bústaðirnir voru mannlausnir og liggja þeir hlið við hlið. Að sögn lögreglu létu eigendur vita af innbrotinu í morgun.

Ekkert var skemmt í bústöðunum utan þess sem það sást á gluggum sem höfðu verði spenntir upp til að komast inn í húsin. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert