Menntamálaráðherra setur 180 milljónir í landsbyggðarverkefni

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

Menntamálaráðherra hefur ákveðið að veita allt að 180 milljónir króna til menntaverkefna á landsbyggðinni sem eru þáttur í mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna tímabundins aflasamdráttar. Veittir verða styrkir til 59 verkefna að þessu sinni.

Við undirbúning styrkveitinga voru símenntunarmiðstöðvar og framhaldsskólar á landsbyggðinni skilgreind sem samstarfsaðilar verkefna sem undirbúin voru í samráði við hagsmunaðila á viðkomandi svæði (stéttarfélög, fyrirtæki og sveitarfélög). Áhersla var lögð á að styrkja menntunarverkefni sem væru til þess fallin að mæta afleiðingum samdráttar í fiskveiðum og fiskvinnslu, að því er segir í  tilkynningu frá ráðuneytinu.

Menntamálaráðuneyti hafði samráð við iðnaðarráðuneyti sem gekkst fyrir greiningu Byggðastofnunar á afleiðingum aflasamdráttar eftir sveitarfélögum um land allt. Jafnframt var ákveðið að leggja sérstaka áherslu á þróunarverkefni til lengri tíma í Vestmannaeyjum og á Höfn í Hornafirði í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

Heildarupphæð styrkja sem ákveðnir hafa verið skiptist þannig á milli svæða.

Suðurnes 20.2 m.kr.
Vesturland 16.6 m.kr.
Vestfirðir 24.2 m.kr.
Norðurland vestra 12.0 m.kr.
Eyjafjörður 05.3 m.kr.
Þingeyjarsýsla 12.0 m.kr.
Austurland 24.9 m.kr.
Hornafjörður 25.0 m.kr.
Suðurland (Þorlákshöfn) 10.2 m.kr.
Vestmannaeyjar 29.0 m.kr.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert