Skýjað víðast hvar á landinu

Veðurstofan spáir hægri vestlægri átt á landinu í dag. Skýjað verður um vestanvert landið og skýjað með köflum austantil. Víða verða þokubakkar við sjóinn. Í nótt verður suðlægari átt og smásúld vestantil.

Síðdegis á morgun verður síðan suðaustan 8-15 og rigning suðvestantil síðdegis. Mun hægari og skýjað með köflum verður norðaustantil. Hiti verður 8 til 18 stig að deginum, hlýjast inn til landsins

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert