Evruleið fremur en aðildarleið?
Björn Bjarnason mbl.is/Sverrir
Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, veltir því upp í pistli á heimasíðu sinni hvort Íslendingar eigi að láta á það reyna tengjast Evrópusambandinu eftir evruleið fremur en aðildarleið.
Björn bendir á að Íslendingar hafi valið þann kost, að tengjast ESB eftir tveimur meginleiðum: með EES-samningnum og Schengen-samkomulaginu.
„Hvernig væri að láta reyna á það á markvissan hátt, hvort unnt sé að setja þriðju stoðina undir þetta samstarf, það er um evruna? Engin lagarök eru gegn því, að það verði gert. Mun meiri pólitísk sátt yrði um þá leið en aðildarleiðina. Evruleiðin kann auk þess að hafa meiri hljómgrunn í Brussel en aðildarleiðin,“ segir Björn.
Fellur ekki við Evrópustefnu stjórnvalda
Hann segir að ákall stórkaupmanna um að íslensk stjórnvöld hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið falli ekki við stefnu ríkisstjórnarinnar í Evrópumálum.
„Áður en ríkisstjórnin getur brugðist við því, þarf að semja nýjan stjórnarsáttmála, en forsætisráðherra hefur margítrekað, að hann hafi ekki hug á að breyta um stefnu í Evrópumálum,“ segir Björn.
Hann segir ennfremur að sjálfstæðismenn muni efna til landsfundar á næsta ári og að boðað hafi verið, að þar verði rætt um Evrópustefnu flokksins.
„Kjörtímabilið rennur út árið 2011. Yrði stjórnarskrá breytt, ríkisstjórn fengi umboð þings og þjóðar til ESB viðræðna og niðurstaða þeirra yrði samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu, þyrfti enn langan tíma til að laga ísenskt efnahagslíf að evru-kröfum,“ segir Björn.
Skorað á stjórnvöld
Félag íslenskra stórkaupmanna lýsir miklum áhyggjum af því ástandi sem skapast hefur í efnahagslífi Íslands og krefst aðgerða af hálfu stjórnvalda strax. Þetta kom fram í opnu bréfi samtakanna til Geirs H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra, sem birt var sem auglýsing í Morgunblaðinu í gær.
Í bréfinu segir m.a. stjórn samtakanna styðji áskorun efnahagsnefndar FÍS til ríkisstjórnar Íslands um að hún beiti sér fyrir því að hafnar verði aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Þá
segir að þótt skoðanir séu skiptar á meðal félagsmanna um aðild að
Evrópusambandinu telji stjórn þess rétt að hefja könnunarviðræður til
að fá fram hvaða valkostum þjóðin standi frammi fyrir varðandi
hugsanlega inngöngu í sambandið.
Bloggað um fréttina
-
Skaz Hvaaa? -
Ómar Ragnarsson Að vera viðbúinn. -
Jón Ingi Cæsarsson Rofar til í Sjálfstæðismyrkrinu. -
Guðbjörn Guðbjörnsson Góð hugmynd - ef mögulegt? -
Samband ungra framsóknarmanna Af hverju áframhaldandi áhrifaleysi? -
Gísli Foster Hjartarson Hik er sama og tap..... -
Sigurður Þorsteinsson Af hverju ekki? -
Sigurður Jónsson BJARGAR BJÖRN FLOKKNUM ? -
Guðmundur Jónas Kristjánsson Myntsamstarf við Norðmenn mun vænlegri kostur -
Björgvin Guðmundsson Björn Bjarnason vill taka upp evru? -
Haukur Nikulásson Binda krónuna við Evru eða Dollar og afnema verðtryggingu -
Pinky and the Brain Björn afskrifar krónuna -
Gunnar Freyr Rúnarsson Flott Björn -
Þórdís Bachmann Ekki er ráð, nema... -
Helgi Jóhann Hauksson Björn velur enn að Ísland lúti öðrum án áhrifa og ... -
Valur Hafsteinsson Evra ... Frábært -
Jón Finnbogason Skrýtin tík þessi samræðupólítík -
Gunnlaugur B Ólafsson Sameiginlegar stoðir til framtíðar
Innlent »
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 29. nóvember 2007, Innlent Axel kominn til Akureyrar
- Laugardagur, 9. maí 2009, Innlent Neikvæðar horfur hjá Landsvirkjun að mati S&P
- Miðvikudagur, 4. júní 2008, Innlent Nýir stúdentshúfusalar seldu nóg
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
- Þriðjudagur, 1. janúar 2008, Innlent Fok og vatnsskemmdir í Hnífsdal
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki




































