Vanmerktar efnavörur í byggingavöruverslunum

Vanmerktar efnavörur voru í öllum verslunum sem heimsóttar voru.
Vanmerktar efnavörur voru í öllum verslunum sem heimsóttar voru. mbl.is/Arnaldur

Viðskiptavinur í byggingavöruverslun getur gert ráð fyrir að í tæplega 30% tilvika vanti alfarið íslenskar varnaðarmerkingar á efnavörur. Þetta sýnir könnun sem framkvæmd var á flest öllum heilbrigðiseftirlitssvæðum á landinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkur.

Þar segir að almenningur kaupi gjarnan efnavörur í byggingavöruverslunum á sumrin meðal annars vegna viðgerða og viðhalds á eigin húsnæði. „Verulegur misbrestur er á merkingum í byggingavöruverslunum. Sérstaklega vantar íslenskar varnaðarmerkingar á efnavörur frá erlendum framleiðendum,“ segir Einar Oddsson hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur og einn höfunda skýrslu um niðurstöður. Alls voru kannaðar 2272 vörutegundir í 16 verslunum.

Byggingavöruverslanir hafa á boðstólum mikið úrval efnavöru en hátt hlutfall inniheldur efni sem flokkast hættuleg og þurfa því íslenskar varnaðarmerkingar í samræmi við reglugerð. Röng meðhöndlun getur valdið slysi, örorku eða jafnvel dauða. Einar hvetur viðskiptavini í byggingavöruverslunum að athuga vel merkingar og gera kröfu um íslenskar varnaðarmerkingar á þeim efnavörum sem innihalda hættuleg efni. Innflytjendur og innlendir framleiðendur eru ábyrgir fyrir þessum merkingunum en söluaðilum er bannað að selja vanmerktar efnavörur.

Aðeins 55% vara rétt merktar 

Helstu niðurstöður könnunarinnar voru að 55% vara voru rétt merktar á íslensku, í 28% tilvika vantaði alfarið íslenskar merkingar en í 17% tilvika voru vörurnar merktar á íslensku en á ófullnægjandi hátt. Vanmerktar efnavörur voru í öllum verslunum sem heimsóttar voru. Eftir því sem verslanirnar stækka og vöruúrvalið eykst virðist hlutfall vara sem ekki eru rétt merktar á íslensku hækka. Öryggisblöð á íslensku voru ekki til staðar í neinni verslun sem könnunin náði til. Gerð er krafa um að þau séu til staðar í verslunum þar sem efnavörur sem innihalda hættuleg efni eru afhent í atvinnuskyni. Eiturefni og bannvörur fundust í nokkrum verslunum en eiturefni eru ekki leyfileg í almennri sölu.

Einar segir mikilvægt að heildsalar og smásalar komi sér upp verklagi til að tryggja varnaðarmerkingar á fullnægjandi hátt. Einnig að áþreifanlegar viðvaranir séu til staðar fyrir sjónskerta en könnunin sýndi að slíkt vantaði helst á innlendar efnavörur og vörur framleiddar utan Evrópu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert