Nauðsynlegt að bregðast strax við

Eitthvað mikið er að þegar Landspítalinn getur ekki staðið í skilum við birgja sína að sögn Ögmundar Jónassonar, þingflokksformanns Vinstri grænna.

Ríkisstjórnin þurfi að bregðast strax við alvarlegri fjárhagsstöðu spítalans. Gjaldfallnar skuldir Landspítalans við birgja nema 800 til 900 milljónum króna. Þetta kemur fram hjá fréttastofu RÚV.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert