Íbúðalánasjóður endurfjármagnar húsnæðislán fjármálafyrirtækja

Samþykkt hefur verið reglugerð sem heimilar Íbúðalánasjóði lánveitingar til fjármálafyrirtækja í þeim tilgangi að endurfjármagna tímabundið íbúðalán sem þessi fyrirtæki hafa veitt gegn veði í íbúðarhúsnæði. Þá er í undirbúningi lagafrumvarp um að sjóðurinn fái heimild til að fjármagna og kaupa ný íbúðalán af fjármálafyrirtækjum.

Í tilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu segir, að með reglugerðinni sé stofnaður nýr lánaflokkur sem heimilar lánveitingar til banka, sparisjóða og lánafyrirtækja með afhendingu íbúðabréfa til tímabundinnar endurfjármögnunar á íbúðalánum sem þessi fjármálafyrirtæki hafa veitt gegn veði í íbúðarhúsnæði hér á landi.

Skilyrði fyrir lánveitingu er að hún sé til þess fallin að tryggja öryggi og framboð lána á íbúðalánamarkaði og eðlilega verðmyndun á íbúðamarkaði.

Setning reglugerðarinnar er í samræmi við yfirlýsingu ríkistjórnarinnar frá 19. júní sl. þar sem kynntar voru aðgerðir á fasteigna- og fjármálamarkaði. Allt að 30 milljörðum króna verður varið til lánveitinga í þessum lánaflokki í formi íbúðabréfa sem eingöngu verða notuð í veðlánaviðskiptum við Seðlabanka Íslands.

Félags- og tryggingamálaráðherra mun jafnframt leggja fram á Alþingi í byrjun september nk. frumvarp þar sem lagt verður til að Íbúðalánasjóði verði veitt heimild til að fjármagna og kaupa ný íbúðalán af fjármálafyrirtækjum. Segir í tilkynningunni að þetta hafi verið ákveðið eftir ítarlega skoðun félags- og tryggingamálaráðuneytisins og Íbúðalánasjóðs að höfðu samráði við Fjármálaeftirlitið og Seðlabanka Íslands. Verði frumvarpið að lögum er áætlað að verja til þessa allt að 30 milljörðum króna á þessu og næsta ári.

Ráðuneytið segr að fram að framangreindar lagabreytingar, sem fyrirhugaðar eru í september, séu óháðar heildarendurskoðun laga um húsnæðismál sem jafnframt er fyrirhuguð á komandi löggjafarþingi sem hefst í október.

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert