„Íslensk fjölfætla með fálmara“ í miðborginni

mbl.is/Ómar

„Þetta er íslensk fjölfætla með fálmara,“ segir Ólafur Guðmundsson, leikstjóri Götuleikhússins. Fjölfætlan liðaðist um götur Reykjavíkur í gær, vegfarendum til mikillar gleði.

„Fólk var grípandi í fálmarana, að snerta hana og velta fyrir sér hvað þetta væri,“ sagði Ólafur um viðbrögðin. „Svo heyrðust skrítin hljóð frá henni eins og hún væri að bulla endalaust.“

Hitt húsið rekur Götuleikhúsið í tvo mánuði í sumar. Tíu ungmenni á aldrinum 16-25 ára taka þátt í starfinu að þessu sinni, 9 stelpur og einn strákur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert