Benda holurnar á olíu?
eftir Arnþór Helgason
arnthor@mbl.is
Á hafsbotni svokallaðs Drekasvæðis, norður undir Jan Mayen, hafa fundist djúpar holur. Þessi fundur þykir renna stoðum undir að svæðið sé fýsilegt til olíuleitar þar sem gerð hafsbotnsins svipar til norska landgrunnsins, en þar er nú mikil olíuvinnsla.
Nýlega kom rannsóknarskipið Árni Friðriksson úr leiðangri, þar sem um 10.500 km² hafsbotnsins nyrst á Drekasvæðinu voru kortlagðir með svokölluðum fjölgeisladýptarmælingum.
„Það er í sjálfu sér saga til næsta bæjar þegar tekst að mæla svo stórt svæði, en veðurskilyrðin voru afar hagstæð,“ segir Guðrún Helgadóttir, jarðfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, en hún stýrði leiðangrinum.
Rannsóknir á þessu svæði hafa verið stundaðar vegna undirbúnings útgáfu sérleyfa til leitar, rannsókna og vinnslu á olíu og gasi á norðanverðu Drekasvæðinu.
Holur eins og í Norðursjó
Guðrún segir að í leiðangrinum hafi fengist mun nákvæmari upplýsingar um hafsbotninn á svæðinu en áður.„Meðal þess sem við mældum voru holur, um 15 m djúpar og allt að 700 m í þvermál. Slíkar holur í setlögum hafa mikið verið rannsakaðar því að þær hafa víða fundist á olíuvinnslusvæðum eins og í Norðursjónum.
Áður hafa fundist merki um gasuppstreymi á þessu svæði. Ekki er vitað hvort um er að ræða hitaummyndað gas af lífrænum toga. Það er annarra að afla frekari vísbendinga um það.“
Rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson heldur innan skamms norður á Drekasvæðið. Þá verða tekin sýni og lífríki hafsbotnsins rannsakað sérstaklega. Ættu niðurstöður leiðangursins að veita enn frekari vitneskju um eðli svæðisins.
Innlent »
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 28. júlí 2008, Innlent Auðlindaleit á Drekasvæðinu milli Jan Mayen og Íslands
- Fimmtudagur, 4. september 2008, Innlent Segir að olía verði takmörkuð og eftirsótt auðlind
- Miðvikudagur, 28. nóvember 2007, Innlent Fé til að rannsaka Drekasvæðið
- Þriðjudagur, 21. júlí 2009, Innlent Vísbendingar um olíu fyrir vestan
- Fimmtudagur, 30. apríl 2009, Innlent Gera kröfu til landgrunns
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji




































