Ómar Ragnarsson verðlaunaður
Ómar Ragnarsson, kvikmyndagerðarmaður og fyrrverandi fréttamaður hjá Ríkissjónvarpinu hlýtur Seacology umhverfisverndarverðlaunin árið 2008 fyrir baráttu sína gegn eyðileggingu á náttúru á hálendi Íslands.
Fram kemur í tilkynningu frá Seacology að Ómar hljóti verðlaunin fyrir að hafa vakið almenning til vitundar um risavaxnar virkjanaframkvæmdir á hálendi Íslands og þau umhverfisspjöll sem stíflugerð og uppistöðulón til að knýja álver Alcoa á Reyðarfirði hafi valdið.
Þar kemur jafnframt fram að efnahagslegur ávinningur Íslands af þessum framkvæmdum sé lítill en gríðarstór svæði ósnortinnar náttúru hafi verið eyðilögð. Því sé Ómar Ragnarsson hetja í umhverfismálum á Íslandi.
Seacology umhverfisverndarverðlaunin hafa verið veitt árlega síðan 1992 til einstaklinga sem þykja hafa lagt mikið af mörkum til verndar lífríki á eyjum um allan heim s.s. Indónesíu, Hawaii, Tonga, Sri Lanka, Madagascar, Borneó og Papúa Nýju Gíneu. Er þetta í fyrsta sinn sem verðlaunin eru veitt vegna umhverfisverndarstarfs í Evrópu.
Seacology eru helstu umhverfisverndarsamtök heims sem hafa það að markmiði að vernda einstakan fjölbreytileika lífríkis á eyjum veraldar. Samtökin voru stofnuð í ljósi þess að meirihluti þeirra plöntu- og dýrategunda sem orðið hafa útdauðar síðustu fjögurhundruð árin lifðu á eyjum heimsins og vinna samtökin ötullega að því að sporna gegn þessari ógnvekjandi þróun, að því er fram kemur í tilkynningu.
Ómar Ragnarsson mun veita verðlaununum formlega viðtöku í San Francisco í Bandaríkjunum 2. október næstkomandi.
Bloggað um fréttina
-
Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir Til hamingju, Ómar! -
Gunnar Th. Gunnarsson Húmbúkk og þvæla -
Haraldur Bjarnason Þetta á Ómar sko skilið -
Njörður Helgason Í þá gömlu góðu daga. -
Dunni Frábært -
Ragnhildur Jónsdóttir Innilegar hamingjuóskir Ómar! -
Brattur Til hamingju Ómar! -
Benedikt Sigurðarson Ómar á allt gott skilið -
Villi Asgeirsson Ómar, óskabarn Íslands? -
Birgitta Jónsdóttir Innilega til hamingju -
Dofri Hermannsson Vel að heiðrinum kominn -
Sigurður Hrellir Tími til kominn!
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 11. febrúar 2009, Innlent Verðlaunaður fyrir björgunarafrek
- Miðvikudagur, 15. október 2008, Innlent Ómar tók við umhverfisverndarverðlaunum
- Laugardagur, 15. nóvember 2008, Innlent Ástráður verðlaunaður fyrir rit um módernisma
- Föstudagur, 1. maí 2009, Innlent Önnur lögmál á landsbyggðinni
- Laugardagur, 19. júlí 2008, Innlent Stórt jökullón að verða til í Vatnajökulsþjóðgarði
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji




































