Fangelsið á Akureyri opnað eftir endurbætur

Tækjasalurinn í fangelsinu á Akureyri.
Tækjasalurinn í fangelsinu á Akureyri. mbl.is/Hjálmar S. Brynjólfsson

Fangelsið Akureyri var formlega opnað í dag eftir gagngerar endurbætur. Þar með lauk öðrum áfanga í áætlun um endurnýjun og uppbyggingu fangelsa í landinu, sem mótuð hefur verið af dóms- og kirkjumálaráðuneyti og fangelsismálastofnun.

Sex fangaverðir starfa í fangelsinu og hefur stöðugildum verið fjölgað um tvö. Eftir endurbætur er unnt að vista 10 fanga í fangelsinu, þar af eru tvö rými sem geta hýst kvenfanga. 

Í fangelsinu eru vistaðir fyrirmyndarfangar, enda stundi þeir vinnu eða nám í fangelsinu auk þess skulu fangar taka þátt í endurhæfingaráætlun.  Fangar  sjá að mestu  um sig sjálfa, þ.e. elda, þrífa, þvo þvott og þjálfast í öðru  sem tengist almennri lífsleikni.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert