Mikið innrennsli í Hálslón

Kárahnjúkastífla og Hálslón.
Kárahnjúkastífla og Hálslón. mbl.is/Ómar

Landsvirkjun segir, að í hlýindunum síðustu vikur hafi verið mikið innrennsli í Hálslón frá Brúarjökli. Gera má ráð fyrir að Hálslón nái yfirfallshæð sem er í 625 metrum yfir sjávarmáli á tímabilinu 12.-14. ágúst nk. Þá mun vatn byrja að renna um þar til gerða yfirfallsrennu við stífluna á vesturbakkanum og niður í gljúfrið neðan hennar og niður Jökuldal.

Undanfarna viku hefefu innrennslið inn í lónið verið um það bil 33 milljón rúmmetrar á sólahring sem jafngildir að meðaltali innrennsli upp á rúma 380 rúmmetra á sekúndu. Þar af renna svo um 120 rúmmetrar á sekúndu til Fljótsdalsstöðvar til orkuframleiðslu.

Landsvirkjun segir að þegar Hálslón nái yfirfallshæð muni vatn byrja að renna um þar til gerða yfirfallsrennu við stífluna á vesturbakkanum og niður í gljúfrið neðan hennar og niður Jökuldal.

Vatnsrennsli í farvegi Jöklu neðan stíflunnar mun síðan aukast nokkuð hratt og gæti miðað við núgildandi veðurútlit orðið á bilinu 200 til 300 rúmmetra á sekúndu. Í miklum hlýindum gæti rennslið orðið miklu meira. Samkvæmt núgildandi spá mun vatn renna á yfirfalli fram í fyrstu viku október.

Ferðamenn sem leið eiga um svæðið eru sem fyrr beðnir um að gæta varúðar á vinnusvæðinu í grennd við stífluna sem og neðan hennar.

 

 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert