Líkur á síðdegisskúrum vestanlands

Veðurstofan gerir ráð fyrir fremur hægri norðaustlæg átt, en norðaustan 8-13 metrum á sekúndu með suðausturströndinni. Bjart verður að mestu vestanlands en líkur á síðdegisskúrum. Annars er skýjað með köflum, en dálítil súld norðan- og austantil með kvöldinu. Hiti verður 8 til 16 stig, hlýjast til landsins vestantil.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert