Fréttamenn bíða í Ráðhúsinu
Stór hópur fréttamanna bíður nú í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn Reykjavíkur, Ólafur F. Magnússon, borgarstjóri og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi, hafa setið á fundi síðdegis og rætt um leiðir til að styrkja samstarfið í meirihluta borgarstjórnar.
Jakob Frímann Magnússon, miðborgarstjóri, var einnig á fundinum.
Til stóð að þau Hanna Birna og Ólafur ættu fund um hádegisbil í dag til að ræða ýmis mál en sá fundur dróst, m.a. vegna þess að fundur skipulagsráðs Reykjavíkur, sem haldinn var í morgun, var mun lengri en áætlað var.
Samkvæmt upplýsingum mbl.is hafa sjálfstæðismenn talið að þrír möguleikar væru á breytingum á samstarfinu. Í fyrsta lagi að breyta hlutverkaskipun í núverandi meirihluta. Í öðru lagi, að fá Framsóknarflokkinn til liðs við núverandi meirihlutaflokka. Loks hefur verið nefndur sá möguleiki, að slíta samstarfinu við F-listann og taka upp samstarf við Óskar Bergsson, Framsóknarflokki.
Undirliggjandi þreytu og óþolinmæði hefur gætt meðal sjálfstæðismanna um nokkurt skeið og ekki hafa skoðanakannanir bætt úr skák. Þær raddir heyrast að erfiðir tímar séu í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar. Því sé ábyrgðarhluti að renna ekki stoðum undir samstarfið þannig að meirihlutinn verði vandanum vaxinn.
Þá er óánægja meðal sjálfstæðismanna með það hvernig umræða hefur þróast um skipulags- og samgöngumál, m.a. vegna Listaháskólans og vegna Bitruvirkjunar. Ólafur F. Magnússon hefur sagt að virkjunin hafi verið slegin af, en það stangast á við orð Kjartans Magnússonar, borgarfulltrúa og stjórnarformanns Orkuveitu Reykjavíkur. Einnig hafa mannaráðningar borgarstjóra í Ráðhúsið farið fyrir brjóstið á sjálfstæðismönnum.
Bloggað um fréttina
-
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir Meiri þvælan -
Haraldur Bjarnason Framhald á farsa hreppsnefndarinnar í Reykjavík -
Guðrún María Óskarsdóttir. Fjölmiðlasirkus í Reykjavík ? -
Snorri Bergz Nýr borgarstjórnarmeirihluti?
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 13. ágúst 2008, Innlent Fundur í Ráðhúsi sagður búinn
- Laugardagur, 7. júní 2008, Innlent Hanna Birna verður borgarstjóri
- Fimmtudagur, 14. ágúst 2008, Innlent Nýr meirihluti að fæðast
- Miðvikudagur, 13. ágúst 2008, Innlent Frumkvæði frá Framsókn?
- Fimmtudagur, 14. ágúst 2008, Innlent Fullyrt að samstarfi hafi verið slitið
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji




































