Hægt að fresta afborgunum af íbúðalánum

mbl.is

Íbúðalánasjóður heimilar nú þeim sem eiga tvær húseignir og hafa ekki getað selt aðra þeirra að fresta afborgunum af lánum. Heimilt er að fresta greiðslum af lánum sjóðsins á annarri eða báðum eignum. Sama rétt eiga þeir sem eru að byggja og eru með lán hjá Íbúðalánasjóði á nýbyggingunni og/eða þeirri eign sem ekki hefur tekist að selja.

Hvíli lán frá Íbúðalánasjóði á annarri eigninni eingöngu er hægt að sækja um greiðslufrest á því láni, að því er segir í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði.

Frestur er veitt í eitt ár í senn en skilyrði sem sett eru fyrir frestun eru að fasteign hafi verið keypt eftir 1. júlí 2007, reynt hafi verið að selja aðra eignina og fjárhæð láns/lána, að lokinni frystingu, fari ekki yfir 90% af kaupverði/söluverði.

Heimilað verður að frysta lán á báðum eignunum. Miðað er við að fjárhæð láns að lokinni frystingu, með áföllnum vöxtum og áætluðum verðbótum, fari ekki yfir 90% veðsetningu af kaupverði eignar eða ásettu söluverði eignar. Ef kaupverð liggur ekki fyrir á nýbyggingu er miðað við endurstofnsverð að viðbættu lóðarmati.

Þegar lán hefur verið fryst þarf ekki að greiða fastar afborganir. Þegar frystingu er aflétt bætast vextir og verðbætur við höfuðstólinn og greiðslubyrði er umreiknuð.

Nánar um reglur sjóðsins 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert