Menningarnótt tókst vel

Mikill fjöldi fólks var í miðborg Reykjavíkur í nótt.
Mikill fjöldi fólks var í miðborg Reykjavíkur í nótt. mbl.is/Júlíus

Aðgerðarstjórn Menningarnætur segir, að hátíðin hefði tekist ákaflega vel. Mikill fjöldi fólks var í miðborginni eftir miðnættið þegar formlegri dagskrá hátíðarinnar lauk.

Talsverð ölvun var lögregla segir engin alvarleg mál hafa komið upp. Lögregla var með mikinn viðbúnað í miðborginni.

Fundur aðgerðastjórnar Menningarnætur var haldinn klukkutíma eftir að
skipulagðri dagskrá hátíðarinnar lauk. Á fundinum voru fulltrúar lögreglu,
slökkviliðs, bráðamóttöku, björgunarsveita og fleiri. Í tilkynningu segir, að það sé mat aðgerðastjórnarinnar að þrátt fyrir rysjótt veðurlag hafi hátíðin
tekist einstaklega vel í alla staði ekki síst vegna þess jákvæða anda sem
einkenndi viðmót gesta hátíðarinnar.

Umferð úr miðborginni gekk greiðlega eftir flugeldasýningu á 12. tímanum í gærkvöldi.  

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var með mikinn viðbúnað í miðborginni í …
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var með mikinn viðbúnað í miðborginni í nótt. mbl.is/Júlíus
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert