Laxveiði slær öll fyrri met

Fimmtíu þúsund laxar eru komnir á land það sem af er sumri og slær það öll fyrri met. Orri Vigfússon formaður Verndarsjóðs villtra laxa segist reikna með að þeir laxarnir verði sextíu og fimm þúsund alls. Orri segir marga þætti ráða úrslitum um meiri veiði, meðal annars, hafbeit og  sleppistefnu sem gerir það að verkum að sami laxinn er jafnvel veiddur  þrisvar sinnum.

Verð á veiðileyfum á laxi hefur rokið upp á síðustu fjórum til fimm árum vegna stóraukinna umsvifa banka og fjármálamanna í öllum stærstu ám landsins. Orri Vigfússon segir eðlilegt að fjármálamenn sæki í að bjóða viðskiptavinum sínum að njóta þess besta sem Ísland hefur uppá að bjóða. Nú megi ætla að þeir haldi sig til hlés en það hafi varla áhrif á verðið. Vellauðugir útlendingar bíði á línunni og verði nú meira áberandi á árbökkunum en áður.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert