Sigurbjörn Einarsson biskup látinn

Sigurbjörn Einarsson biskup stækka

Sigurbjörn Einarsson biskup mbl.is/Rax

Sigurbjörn Einarsson, biskup, lést á Landspítalanum í morgun, 97 ára að aldri. Sigurbjörn var vígður sem biskup yfir Íslandi árið 1959, þá 47 ára að aldri og gegndi embættinu til ársins 1981.

Dr. Sigurbjörn Einarsson fæddist 30. júní 1911 á Efri Steinsmýri í Meðallandi, Vestur Skaftafellssýslu. Foreldrar hans voru Magnús Kristinn Einar Sigurfinnsson, bóndi á Efri –Steinsmýri í Meðallandi, og Gíslrún Sigurbergsdóttir, húsfreyja.

Sigurbjörn lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1931 og nam almenn trúarbragðavísindi, klassísk fornfræði og sögu við Uppsalaháskóla. Hann lauk þaðan prófi í grísku, fornfræðum og sögu árið 1936 og hlaut cand. fil. gráðu frá heimspekideild Stokkhólmsháskóla árið 1937. Kandídatsprófi í guðfræði lauk hann frá Háskóla Íslands árið eftir. Sigurbjörn stundaði framhaldsnám í nýja-testamentisfræðum við Uppsalaháskóla 1939, í trúfræði við Háskólann í Cambridge sumarið 1945 og framhaldsnám veturinn 1947-48, meðal annars í Basel.

Séra Sigurbjörn Einarsson var settur sóknarprestur í Breiðbólstaðarprestakalli á Skógarströnd frá 1. sept. 1938 og vígður í september sama ár. Honum var veitt Hallgrímsprestakall í janúar 1941 og þjónaði þar til 1944 þegar hann var skipaður dósent í guðfræði við Háskóla Íslands þar sem hann hafði verið settur kennari. Hann var skipaður prófessor í guðfræði 1949 og gegndi því starfi til 1959 er hann var vígður biskup Íslands. Hann þjónaði sem biskup Íslands til ársins 1981.

Er Sigurbjörn lét af embætti biskups Íslands sinnti hann margvíslegum verkefnum, kennslu og ritstörfum. Hann var meðal annars leiðbeinandi á kyrrðardögum í Skálholti frá upphafi þeirra og síðast nú í janúar 2008. Sigurbjörn Einarsson var einn afkastamesti predikari sinnar samtíðar og sinnti þeirri köllun sinni til hinstu stundar.

Sigurbjörn Einarsson gegndi fjölmörgum félags-og trúnaðarstörfum. Hann var meðal annars formaður bókagerðarinnar Lilju frá stofnun 1943 og til 1959, formaður Þjóðvarnarfélags Íslendinga 1946 – 50, formaður Skálholtsfélagins frá stofnun þess 1949. Hann sat í stjórn Hins íslenska Biblíufélags frá 1948 og var forseti þess 1959 – 81, forseti Kirkjuráðs og Kirkjuþings 1959-81 og sat í stjórn Nordiska Ekumeniska Institutet 1959 – 81. Sigurbjörn var formaður sálmabókarnefndar 1962-72, formaður þýðingarnefndar Nýja testamentisins 1962-81 og sat í nefnd á vegum Lúterska heimssambandsins um trúariðkun og trúarlíf 1964-68. Hann var formaður Listvinafélags Hallgrímskirkju 1982-87 og Skólanefndar Skálholtsskóla 1972-81.

Sigurbjörn Einarsson var kjörinn heiðursdoktor í guðfræði við Háskóla Íslands 1961 og Háskólann í Winnipeg 1975. Hann var heiðursfélagi Prestafélags Íslands 1978, Félags íslenskra rithöfunda 1981, Hins íslenska Biblíufélags 1982 og Prestafélags Suðurlands 1987.

Sigurbjörn biskup var afkastamikill á ritvellinum, bæði á sviði fræðibóka, þýðinga, trúarrita og sálma. Af fjölmörgum ritum hans má nefna Trúarbrögð mannkyns, Opinberun Jóhannesar - skýringar, ævisögu Alberts Schweitzer og kennslurit um trúarbragðasögu og trúarlífssálfræði. Hann gaf út fjölda bóka með greinum, predikunum og hugvekjum og má þar nefna bækurnar Meðan þín náð, Helgar og hátíðir, Coram Deo, Haustdreifar, Konur og Kristur, Sárið og perlan og Orð krossins við aldahvörf. Hann samdi og þýddi fjölda sálma í Sálmabók kirkjunnar.

Sigurbjörn kvæntist árið 1933 Magneu Þorkelsdóttur. Hún lést 10. apríl 2006. Börn þeirra eru: Gíslrún, kennari, Rannveig, hjúkrunarfræðingur, Þorkell, tónskáld, Árni Bergur, sóknarprestur, d. 2005, Einar, prófessor við HÍ, Karl, biskup Íslands, Björn, sóknarprestur í Danmörku, d. 2003, Gunnar, hagfræðingur, búsettur í Svíþjóð.

  • Til baka
  • Senda

Innlent »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

Í gær, 19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »
Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

Í gær, 18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

Í gær, 18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
Í gær, 17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
Í gær, 21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
Í gær, 17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944-1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
Í gær, 17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
Í gær, 17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
Í gær, 16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
Í gær, 16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

Í gær, 15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
Í gær, 15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
Í gær, 14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

Í gær, 15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholti fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
Í gær, 15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
Í gær, 14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
BARCELONA - Dásamleg borg
Til leigu flott íbúð í Example við Gaudi kirkjuna. Internet og öll bestu þægindi...
Fleetwood Cheyenne (Resolute) 2006
Fleetwood Cheyenne 10 fet. Mjög vel með farið fellihýsi - lítið notað, nýskr. 20...
Toyota Land Crusier 2008
Toyota Land Crusier 120 GX. Sjsk. Diesel. Ekinn 67.000, 2008 árgerð. Ásett ve...
FORD TAURUR bSES 2002
Ford Taurus SES árg 2002 ekinn 87.000 mílur sumardekk + vetrar sami eigandi í 9á...
 
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...
Bæjarlögmaður
Sérfræðistörf
Bæjarlögmaður Kópavogsbær auglýsir stö...
Tækniskólinn - atvinnuauglýsing
Önnur störf
Framúrskarandi kennarar óskast í ...
Skólastjóri hrafnatilsskóla
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...