Bretar kvikmynda mýrarbolta í Tungudal

Hópur breskra kvikmyndatökumanna kemur til Ísafjarðar í dag og ætlar á morgun að mynda mót í mýrarbolta í Tungudal. Ekki er um alvöru mót að ræða heldur er þetta gert fyrir kvikmynd sem verður m.a. sýnd á BBC World og National Geographic.

Myndin fjallar um áhugaljósmyndara sem vinnur samkeppni á vegum Canon myndavélaframleiðandans. Honum er sett fyrir það verkefni að mynda Evrópumeistaramótið í mýrarbolta sem fram fer á Ísafirði, þar sem m.a. tekur þátt alþjóðlegt lið slökkviliðsmanna.

Að sögn upplýsingafulltrúa Ísafjarðarbæjar er nú lag fyrir íbúa á norðanverðum Vestfjörðum og gesti þeirra að verða kvikmyndastjörnur. Tökur hefjast klukkan 14 og þeim lýkur klukkan 16.

Nánari upplýsingar á vef Ísafjarðarbæjar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert