Gámur fauk á staur á Kjalarnesi

Gámur fauk á staur á Kjalarnesi.
Gámur fauk á staur á Kjalarnesi. mbl.is/Þórður Bogason

Gámur fauk á ljósastaur við Klébergsskóla í hvassviðrinu á Kjalarnesi í nótt, en vindhraði mældist allt að 35 metrar á sekúndu um þrjúleytið í nótt. 

Að sögn Þórðar Bogasonar, búfræðings, fauk gámurinn á ljósastaur við grasvöll á skólalóðinni, og brotnaði staurinn.  Gámurinn stóð á planinu þar sem verið var að leggja gervigras á völlinn.   

Þórður segist ekki hafa orðið var við frekara tjón en vindhraði mældist um 35 metrar á sekúndu klukkan þrjú í nótt.

Talsvert foktjón er í nýbyggingu í Mosfellsbæ
Talsvert foktjón er í nýbyggingu í Mosfellsbæ mbl.is/Sigurður Grímsson
Frá nýbyggingu við Brúnás í Mosfellsbæ
Frá nýbyggingu við Brúnás í Mosfellsbæ mbl.is/Sigurður Grímsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert