Velta á íbúðamarkaði dregst saman um 70%

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Í ágúst voru gerðir samtals 251 kaupsamningar um íbúðarhúsnæði fyrir samtals 7,7 milljarða króna en á sama tíma fyrir ári síðan voru kaupsamningar 830 talsins og veltan nam tæplega 25 milljörðum króna. Velta á íbúðamarkaði hefur því dregist saman um 70% á milli ára. 

Þrátt fyrir litla veltu hafa umsvif á íbúðamarkaði aukist lítillega frá byrjun sumars, að því er segir í Morgunkorni Glitnis.

„Samkvæmt mælingum Hagstofunnar hefur íbúðaverð á landinu öllu lækkað um 0,2% á sama tímabili. Við spáum því að nafnverð íbúðarhúsnæðis lækki um 4% á þessu ári, sem er umtalsverð lækkun í sögulegum samanburði en vert er að hafa í huga að til engrar nafnverðslækkunar kom í síðustu niðursveiflu á íbúðamarkaði hér á landi árið 2001.

Í alþjóðlegum samanburði er 4% lækkun þó ekki mikil um þessar mundir en hraðrar kólnunar hefur gætt á húsnæðismarkaði í Bandaríkjunum og Bretlandi og húsnæðisverð lækkað mikið síðustu mánuði," að því er segir í Morgunkorni Glitnis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert