Valin sóknarprestur í Mosfellsprestakalli

Ragnheiður Jónsdóttir.
Ragnheiður Jónsdóttir.

Valnefnd í Mosfellsprestakalli, Kjalarnesprófastsdæmi, ákvað á fundi  í gær  að leggja til að sr. Ragnheiður Jónsdóttir verði ráðin sóknarprestur í prestakallinu. Átta umsækjendur voru um embættið.

Embættið veitist frá 15. október næstkomandi. Biskup Íslands skipar í embættið til fimm ára að fenginni umsögn valnefndar. Valnefnd skipuðu níu manns úr prestakallinu ásamt prófasti Kjalarnesprófastsdæmis.

Ragnheiður lauk kandídatsprófi frá guðfræðideild Háskóla Íslands árið 1998 og var skipuð sóknarprestur í Hofsósprestakalli sama ár. Hún hefur starfað sem prestur í Mosfellsprestakalli frá árinu 2004.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert