Fíkniefni fundust í nokkrum íbúðum í miðborginni

Lauf kannabisplöntunnar.
Lauf kannabisplöntunnar. mbl.is

Fíkniefni fundust við húsleitir í nokkrum íbúðum í miðborginni í gærkvöld. Um var að ræða hass, amfetamín, marijúana, e-töflur og kannabisplöntur. Einnig var lagt hald á peninga sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu.

Höfð voru afskipti af nálægt tuttugu manns í þessum málum en í híbýlum sjö þeirra, eða á þeim sjálfum, fundust fíkniefni, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert