Fjölmenni á Ljósanæturhátíðinni

Mikið hefur um að vera í Reykjanesbæ, en þessi mynd …
Mikið hefur um að vera í Reykjanesbæ, en þessi mynd var tekin í gær á öðrum degi Ljósanæturshátíðarinnar. mynd/Víkurfréttir

Hátíðin Ljósanótt stendur nú sem hæst í Reykjanesbæ og er mikið fjölmenni í bænum að sögn Ásmundar Friðrikssonar, verkefnisstjóra hátíðarinnar. Hann segir að hátíðin hafi farið vel fram. „Það er svakaleg stemning hérna, mikið af börnum og fjölskyldum,“ sagði hann í samtali við mbl.is.

Ýmislegt er um að vera í tengslum við hátíðina, en í dag hefur verið margt í boði fyrir barnafjölskyldur og fólk á öllum aldri, s.s. hálandaleikar, myndlistasýningar og tívolí.

Kl. 15:30 var svo formleg opnun Skessuhellis í Gróf.

Kvölddagskráin hefst svo kl. 20, en boðið verður upp á tónleika þar sem Ljósanæturlagið árið 2008 verður flutt. 

Meðal þeirra hljómsveita sem munu taka lagið eru Buff og Egó. Kl. 22:15 verður síðan flugeldasýning.

Lokadagur hátíðarhaldanna verður svo á morgun sunnudag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert