Hvetur til rannsókna á gróðurskemmdum

Gróðurskemmdir hafa komið í ljós á Hengissvæðinu.
Gróðurskemmdir hafa komið í ljós á Hengissvæðinu. mbl.is/Magnús

Orkuveita Reykjavíkur hvetur til þess, að gróðurskemmdir, sem komið hafa í ljós vestan Reykjafells á Hengilssvæðinu, verði rannsakaðar ofan í kjölinn, sérstaklega með það fyrir augum að kanna hvort starfsemi Hellisheiðarvirkjunar hafi haft áhrif þarna á.

Fjallað var um gróðurskemmdirnar í sjónvarpi mbl.is í dag. Orkuveitan segir, að ekki hafi orðið vart svipaðra gróðurskemmda við Nesjavallavirkjun, sem starfrækt hefur verið í tæpa tvo áratugi á sama jarðhitasvæði. 

Starfsfólk Orkuveitunnar hefur þegar verið í sambandi við starfsfólk Náttúrufræðistofnunar í því skyni að afla sér frekari upplýsinga og bollaleggja um hvernig best sé að rannsaka tilgátur vísindamanna á sem skemmstum tíma.

Hjörleifur B. Kvaran, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, segir í tilkynningu frá OR, að á Hellisheiðinni og þar í grennd eigi fyrirtækið samstarf við fjölda aðila um uppgræðslu, þ.á.m. Landgræðsluna, Náttúrufræðistofnun og almannasamtökin Gróður fyrir fólk,  og vinni að því að endurheimta gróður. Það sé því slæmt að horfa upp á þessir skemmdir á svæðinu.

Á síðasta ári auglýsti Umhverfis- og orkurannsóknasjóður Orkuveitunnar eftir vísindafólki til að rannsaka áhrif gufu og heits vatns á gróður, en enginn gaf sig fram.

„Þó nýting háhitasvæða sé ekki alveg ný af nálinni, verðum við að hafa augun opin fyrir því að við kunnum að eiga margt ólært," segir Hjörleifur.

Brennisteinsvetni, sem veldur hveralykt, er um 0,01% af útblæstri virkjananna á Hengilssvæðinu. Nú er unnið að því að skilja lofttegundina frá gufunni og verður henni skilað aftur ofan í jarðhitageyminn um niðurrennslisholur við virkjunina. Sömu aðferð verður beitt á þær virkjanir Orkuveitu Reykjavíkur sem fyrirhugaðar eru. Þá á Orkuveitan einnig í samstarfi við líftækifyrirtækið Prókatín um nýtingu brennisteinsvetnis til framleiðslu á prótíni, sem nýta má t.d. í skepnufóður.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert