Kynbundinn launamunur eykst
mbl.is
Niðurstöður launakönnunar SFR - stéttafélags í almannaþágu, sýna að kynbundinn launamunur er viðvarandi og vaxandi vandamál hjá hinu opinbera. Munurinn hefur aukist um 3% á milli ára hjá SFR, en stendur í stað hjá félagsmönnum VR.
Þannig hafa meðalheildarlaun karla í fullu starfi sem eru félagar í SFR verið 376 þúsund í ár, en meðalheildarlaun kvenna 274 þúsund krónur. Konur fá því að meðaltali 27% lægri heildarlaun en karlar.
Í heildalaunum koma þó fram launaþættir sem skýra að hluta hærri heildarlaun karla, en þegar tekið hefur verið tillit til allra þátta, s.s. aldurs, vinnutíma, eftirvinnu o.s.frv. stendur eftir að óútskýrður launamunur kynjanna er 17,2%, sem er veruleg aukning frá síðasta ári þegar munurinn mældist 14,3%.
Meðal félagsmanna VR er hinsvegar ekki marktæk breyting á kynbundnum launamun, hann mælist nú 12,3% en var 11,6% í fyrra.Í skýrslu VR er vakin athygli á þessum mun og þeirri spurningu velt upp hvort markaðslaunakerfi eins og tíðkast almennt á hinum almenna vinnumarkaði henti konum betur en miðstýrt launakerfi, eins og er við lýði hjá ríkisfyrirtækjum.
Árni Stefán Jónsson, formaður SFR, segir að félagið líti þetta mjög alvarlegum augum. „Þessar tölur komu verulega á óvart og við erum gagnrýnin á ríkisstjórnina vegna þessar niðurstaðna. Við settum þetta á oddinn þegar við vorum að gera kjarasamninginn í maí og þá voru fögur fyrirheit sem varð ekkert úr. Ríkið kom ekki með neina peninga inn í þennan málaflokk sem er það sem þarf ef árangur á að nást við að leiðrétta þetta.“
„Ef þú berð saman okkur og VR sést að kynbundinn launamunur er miklu meiri hjá okkur en á almennum markaði. Það er nú nokkuð skrýtið því launakerfi ríkisins ætti að vera miklu gagnsærra heldur en launakerfið á hinum almenna markaði,“ segir Árni. „Ríkið hefur alla möguleika til að taka á þessu, en gerir það ekki.“
Niðurstöður launakannananna má skoða nánar á heimasíðum Vr og SFR.
Bloggað um fréttina
-
Geir Ágústsson Óútskýrð vitleysa eykst á milli ára -
Guðrún María Óskarsdóttir. Hvað á að ræða þetta vandamál lengi án aðgerða ? -
-
Björgvin Guðmundsson Kynbundinn launamunur eykst.Aðgerða er þörf
Innlent »
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 15. september 2009, Innlent Lægstu launin hafa hækkað meira
- Fimmtudagur, 3. apríl 2008, Innlent Telja að launin þurfi að hækka um 26-28%
- Föstudagur, 12. september 2008, Innlent „Óviðunandi niðurstaða“
- Sunnudagur, 9. september 2007, Innlent Félagskonur SFR með 25% lægri heildarlaun en karlar
- Miðvikudagur, 22. ágúst 2007, Innlent Tekjubilið breikkar með vaxandi launaskriði hjá VR
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































