Eggert: Ánægður og þakklátur
Eggert Haukdal kvaðst ánægður og þakklátur fyrir sýknudóminn í dag eftir tíu ára þrautagöngu. Aldrei hefði verið hægt að sanna á sig einn einasta þjófnað þrátt fyrir að kerfið hefði barist við að halda málinu áfram.
„Það var búið koma því þannig fyrir með lygum og ómerkilegheitum að ég væri lygari og þjófur,“ sagði hann í samtali við mbl.is rétt í þessu.
„Dómskerfið á Íslandi er búið að hafa mig þjóf í tíu ár,“ sagði Eggert og játaði því að hann ætlaði með málið lengra. „Að sjálfsögðu er ýmislegt framundan, meðal annars það að krefjast skaðabóta. Það fer í fullan gang.“
„Þetta er mikill léttir fyrir Eggert Haukdal,“ sagði Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Eggerts eftir að sýknudómurinn var kveðinn upp í dag. „Eftir næstum því áratugar baráttu, þar af átta ár fyrir dómstólum. Það tókst loks að fá endurupptöku í fyrra og svo dóm núna um að hann sé saklaus,“ sagði Ragnar.
Hann taldi stórmerkilegt að endurupptöku hefði verið hafnað í tvígang að minnsta kosti, en loks í þriðju tilraun hefði tekist að fá málið tekið upp aftur. Þá hefði komið í ljós að aldrei hefðu legið fyrir sönnungargögn um sekt Eggerts.
„Það var aldrei sannað að hann væri sekur um það sem hann var ákærður fyrir,“ sagði Ragnar og bætti við að dagurinn í dag væri þannig mjög góður fyrir Eggert.
„Hins vegar má segja að bestu ár ævi hans hafi farið í þetta og að því leyti er þetta hörmulegt,“ sagði Ragnar.
Bloggað um fréttina
-
Magnús Geir Guðmundsson "Dýr yrði haukdal allur"! -
Drífa Kristjánsdóttir Til hamingju Eggert Haukdal -
Þórir Kjartansson Ánægjuleg frétt -
Þorkell Guðnason “sú eik, sem lengst og styrkast stóð” -
Kjartan Pétur Sigurðsson EINELTI Á ÍSLANDI! -
Guðbjörn Jónsson Já, um hvað snýst sigur Eggerts -
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson Mjög ánægjulegur og mikilvægur sigur.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 18. september 2008, Innlent Eggert Haukdal sýknaður
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
- Laugardagur, 9. maí 2009, Innlent Neikvæðar horfur hjá Landsvirkjun að mati S&P
- Föstudagur, 30. nóvember 2007, Innlent Ræs! sagði Össur
- Miðvikudagur, 4. júní 2008, Innlent Nýir stúdentshúfusalar seldu nóg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































