Fimmtán dýr óveidd

mbl.is/Sigurður Aðalsteinsson

Ekki tókst að veiða fimmtán hreindýr af 1.333 dýra veiðikvóta ársins en hreindýraveiðitímabilinu lauk á mánudag. Þetta er þó engu að síður metveiði þar sem kvótinn hefur aldrei verið meiri.

 Af dýrunum fimmtán sem ekki náðust voru flest á svæði 9, sex kýr og tveir tarfar. Á svæði þrjú sluppu sex kýr og ein á svæði fimm.

Þyngsti tarfurinn veiddist á svæði sex í ágúst. Hann vóg 120 kílógrömm. Var það Davíð Þór Valdimarsson sem veiddi hann en leiðsögumaður var Magnús Karlsson, bóndi á Hallbjarnarstöðum í Skriðdal. Austurglugginn skýrir þessu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert