Reykjanesbraut lokuð í nótt

Reykjanesbraut verður lokuð við gatnamót Vífilstaðarvegar til suðurs frá kl. 22:30 í kvöld og til kl. 05:30 í nótt, samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni. Gatnamót Reykjanesbrautar og Vífilstaðarvegar eru við golfkvöll golfklúbbs GKG og Vífilsstaðaspítala.

Umferð sem kemur úr norðri frá Reykjavík mun fara um hjáleið sem liggur í gegnum Garðabæ um Vífilsstaðaveg og yfir á Hafnarfjarðarveg. Vegfarendur eiga val m nokkrar leiðir eftir þeirri leið. Umferð sem kemur úr suðri frá Hafnarfirði mun ekki verða fyrir truflun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert