Illvígar deilur Frjálslyndra

Guðjón Arnar Kristjánsson
Guðjón Arnar Kristjánsson mbl.is/Sverrir

Formaður Frjálslynda flokksins kom heim frá Rússlandi í gær til að takast á við mestu innbyrðis deilur sem orðið hafa í flokknum frá stofnun, segja menn sem starfað hafa í Frjálslynda flokknum frá upphafi. Nú sé formaður í hættu, í viðbót við það sem var þegar Margrét Sverrisdóttir og Magnús Þór Hafsteinsson tókust á um varaformannsembættið. Átök sem enduðu með útgöngu Margrétar og stuðningsmanna hennar úr flokknum.

Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður flokksins, styður Kristin H. Gunnarsson áfram sem þingflokksformann og telur hann hafa sætt einelti. Kolbrún Stefánsdóttir ritari styður Kristin. Magnús Þór Hafsteinsson varaformaður styður Kristin ekki og miðstjórn vill að Kristinn víki.

Allir á móti öllum

En þetta er mál þingflokksins, þar inni er Jón Magnússon harðastur gegn Kristni, en Grétar Mar segist styðja formanninn hvernig sem fer.

Í miðstjórn sitja tveir fyrrverandi þingmenn, Sigurjón Þórðarson, sem liggur undir feldi formannsframboðs, og Magnús Þór Hafsteinsson, sem er varaformaður og jafnframt aðstoðarmaður formannsins en er honum ósammála um þingflokksformanninn. Magnús Þór neitar að tjá sig um hvort trúnaðarbrestur felist í þessu.

Þótt órói vaxi í stofnunum flokksins er því jafnan neitað að vegið sé að formanninum. Jón Magnússon þingmaður ritar þó um dugleysi þingflokksformanns og formanns sem hafi haldið fundi í sumar: „Á mínum pólitíska ferli þá þekki ég ekki annað eins áhugaleysi um pólitík eins og þarna kemur fram og virðingarleysi við fólkið í flokknum,“ segir Jón. Hann kveðst enn treysta Guðjóni og telur minni líkur en meiri á að flokkurinn klofni. „Ég vænti þess að formaður taki skynsamlega ákvörðun.“ Grétar Mar þingmaður telur línur fara að skýrast. Sjálfur kveðst hann sáttur við að Kristinn sitji áfram þennan þingvetur sé það vilji formannsins. Hann telur niðurstöðu miðstjórnar ekki góða og trúir því ekki að menn kljúfi lítinn flokk um það hvort þingflokksformaðurinn sitji átta mánuðum lengur eða skemur. „Ef menn kljúfa tapa allir.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert