Hálka og snjór í flestum fjórðungum

Frá Akureyri í gærkvöldi
Frá Akureyri í gærkvöldi mbl.is/Skapti

Flughálka er í Langadal og eru vegfarendur beðnir um að sýna varúð. Það er víða orðið vetrarlegt og komin einhver hálka eða snjór sumstaðar á Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi og Austurlandi. Hálka og hálkublettir eru sumstaðar á Snæfellsnesi og í Dölum.

Snjóþekja og éljagangur er á Holtavörðuheiðinni. Á Vestfjörðum er snjóþekja á Þorskafjarðarheiði og norðanverðum Ströndum. Þá eru hálkublettir í Önundarfirði og Súgandafirði og víðar.

Hálka, krapi eða snjór eru víða á Norður og Austurlandi. Þæfingur er á Lágheiði. Skafrenningur er á Möðrudalsöræfum og Vopnafjarðarheiði. Öxarfjarðarheiði er orðin ófær en þæfingsfærð er á Hellisheiði eystri, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert