VALITOR, sem er útgáfuaðili fyrir hönd banka- og sparisjóða að VISA debet-og kreditkortum, hefur sent frá sér tilkynningu þar sem áréttað að notkun korta verður eftir sem áður með eðlilegum hætti. Þetta eigi við um öll kortaviðskipti, jafnt hjá söluaðilum og í hraðbönkum, bæði hér heima og erlendis.
Vísað er til orða forsætisráðherra í dag, að markmið aðgerða ríkisstjórnarinnar, sem kynntar hafa verið, sé m.a. að tryggja það að almenningur fái eðlilega bankaþjónustu.