Skilorðsbundið fangelsi fyrir kjaftshögg

Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir að slá annan mann hnefahöggi í andlitið utan við Draugabarinn á Stokkseyri með þeim afleiðingum að tönn brotnaði.

Þetta gerðist í nóvember í fyrra. Maðurinn játaði brotið. Hann var einnig dæmdur til að greiða sakarkostnað, tæplega 84 þúsund krónur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert