Haldið sofandi í öndunarvél eftir bílslys

Maðurinn sem slasaðist alvarlega í bílslysinu á Þorlákshafnarvegi í gær liggur á gjörgæsludeild Landspítalans og er haldið sofandi í öndunarvél. Að sögn vakthafandi svæfingarlæknis er líðan hans óbreytt frá í gær.

Lögreglan á Selfossi rannsakar slysið sem varð með þeim hætti að tveir bílar úr gagnstæðri átt rákust saman. Maðurinn hlaut alvarlega höfuðáverka en ökumaður hins bílsins slapp við alvarleg meiðsl.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert