Brugðist við vanda Íslendinga erlendis

Utanríkisráðuneytið hefur í samstarfi við félags- og tryggingamálaráðuneytið unnið að úrræðum til að bregðast við vanda Íslendinga erlendis sem hafa átt í erfiðleikum með að nálgast fjármuni sína af íslenskum reikningum.

Sendiskrifstofur Íslands munu hafa milligöngu um ráðgjöf og aðstoð við Íslendinga erlendis vegna aðstæðna á fjármálamarkaði hérlendis. Þeim, sem eiga í erfiðleikum með að nálgast fjármuni sína, er því bent á að snúa sér til næstu sendiskrifstofu Íslands en upplýsingar um hvar hana er að finna eru á heimasíðu utanríkisráðuneytisins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert