Ókeypis morgunmatur hjá IKEA

IKEA fagnaði um síðustu helgi 2ja ára afmæli í Kauptúni. Í tilefni af því var gestum boðinn ókeypis morgunverður báða helgardagana. Segir fyrirtækið, að vegna fjölda áskorana hafi verið ákveðið að bjóða aftur ókeypis morgunverð núna um helgina  á milli klukkan 9:30 og 11.

Í morgunverðinum er innifalið 2 rúnnstykki, 1 egg, skinka, ostur, smjör, sulta og heitur drykkur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert