Þjónustuver í Bandaríkjunum flutt til Íslands

mbl.is/Skapti

Icelandair hefur ákveðið að hætta starfsemi sérstaks þjónustuvers í Bandaríkjunum og styrkja með því grundvöll höfuðstöðvanna í Reykjavík. Með þessari ráðstöfun flytjast verkefni frá Bandaríkjunum til Íslands sem 16 einstaklingar hafa sinnt í Maryland í Bandaríkjunum.

Starfsemin á Íslandi verður efld, opnunartími lengdur og símtölum viðskiptavina bæði austan hafs og vestan svarað hér heima, samkvæmt tilkynningu.

Í þjónustuverinu starfa fargjaldasérfræðingar sem tala fjölmörg tungumál og er símtölum sjálfkrafa vísað á starfsmenn eftir því frá hvaða löndum þau berast. Eftir breytinguna verður lögð höfuðáhersla á markaðs- og sölustarf á skrifstofu félagsins í Maryland í Bandaríkjunum.

Á sama tíma verða breytingar á starfi Icelandair í Evrópu þegar sölusvæði félagsins í Frakklandi og Þýskalandi sameinast undir stjórn Einars Páls Tómassonar svæðisstjóra í Frankfurt.

Að undanförnu hefur Icelandair sett meiri þunga í markaðsstarf sitt erlendis, að hluta til með því að minnka tímabundið markaðssókn á Íslandi. Viðbrögð við aukinni markaðssókn erlendis hafa verið jákvæð, samkvæmt tilkynningu.

„Allar ákvarðanir sem teknar eru miða að því að styrkja stöðu Icelandair. Hagsmunir fyrirtækisins og Íslendinga eru að virkja markaði erlendis, til dæmis með því að vekja athygli á Íslandi sem hagstæðum áfangastað,“ segir Helgi Már Björgvinsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert