Skaði lífeyrisþega ekki ljós

Hrafn Magnússon, fyrir miðju, segist vonast til þess að tapið …
Hrafn Magnússon, fyrir miðju, segist vonast til þess að tapið verði ekki of mikið fyrir lífeyrissjóðina. Arnaldur Halldórsson

Ekki er enn ljóst hversu mikið lífeyrir landsmanna skaðaðist vegna bankahrunsins. Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssambands lífeyrissjóða, segir kröfur lífeyrissjóðanna vera um hundrað milljarðar króna.

Lífeyrissjóðirnir í landinu voru hluthafar í Glitni, Landsbankanum og Kaupþingi sem skilanefndir á vegum fjármálaeftirlitsins hafa nú tekið yfir. Sérstaklega er mikið í húfi fyrir lífeyrissjóðina varðandi Kaupþing. Þar voru þrír lífeyrissjóðir meðal átta stærstu hluthafa, Lífeyrissjóður verslunarmanna, Gildi lífeyrissjóður og Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins.

Lífeyrissjóðirnir höfðu áhuga á því að eignast meirihluta í Kaupþingi en ríkið hefur hafnað því að ganga til samninga við forsvarsmenn þeirra.

Hrafn segir lífeyrissjóðina geta dregið úr skaðanum með því að skuldajafna tapið á hruni bankanna. „Þó kröfurnar séu yfir hundrað milljarðar þá eru lífeyrissjóðirnir með gjaldmiðlasamninga á móti sem nota má til þess að skuldajafna samkvæmt gjaldþrotalögum. Við erum að vinna að því núna að skoða hvernig landið liggur. Við funduðum með [Björgvini G. Sigurðssyni innsk. blm.] viðskiptaráðherra og [Árna M. Mathiessen] fjármálaráðherra og fórum yfir málið. Það verður að koma í ljós hvernig þetta endar en við erum vongóð um að skaðinn þurfi ekki að vera eins mikill og hann leit út fyrir í fyrstu.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert